My sister, my sister!
12.02.2007 10:59:45 / klara_24

Já, enn eitt nýtt lykilorðið!!!

Heil og sæl og velkomin í árlegt blogg Gunnþórunnar!

Af mér er allt flennigott að frétta, ja eða svona að mestu allavega, smá drama í gangi en það er ekki við öðru að búast þegar um lukkudýr eins og mig er að ræða. Lífið í FSu gengur sinn vanagang, nemendurnir eru bara flennifínir (flenni er orð dagsins hjá mér!) og bara flennigaman að kenna. Er að fara vestur eftir mánuð tæpan, er að sjálfsögðu að fara að hitta miss Anna Sigga and mister Jonathan. Föruneytið verður frítt og frækið, engar aðrar en Skeiðaskvísurnar Vaka og Lilja...eða Vakmundur Kvaran og Lilly Billy. Fór á flennidjamm um helgina með Guggu, Lilju ofl. Fórum á Pakkarann þar sem fólk var ekki að höndla það að standa í lappirnar, aðallega fólk sem var með mér.Ein flaug m.a.s. á sviðið.....jú nó hú jú ar! Fyndið af mörgum ástæðum en pínku embarrassing!  Svo var flennieftirpartý á Reynó, síðustu gestirnir fóru um áttaleytið og þá skreið Gugga upp í rúm til mín og fór að knúsa mig í svefni eins og vanalega. Jæja, ég er orðin of soltin til að standa í þessu...er líka geðsjúklega syfjuð! Þeir sem þekkja mig vel, hringið endliega í mig og látið mig vita ef áhugi er fyrir Reykjapartýi. Það yrðu þá systkini og vinir...stór hópur og flenniferð hreint út sagt!

Ciao í bili:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 15:43:46 / klara_24

Bekk in thö geim!

Gódan daginn gód lesönd...jebb súr eins og súr broskall í Daddabúd!

Túttan hefur hafid ritstörf á ný eftir, hmmm, smápásu! Á thad til ad gleyma lykilordum og notandanöfnum, var svolítid ad hindra mig í ad skrifa, já og svo núna undanfarid hefur 30 stiga hiti og laerdómur haldid mér í burtu frá skítugum lyklabordum spaenskra internetbúlla...eda búllna, hmm thetta var svolítid eins og ad beygja ömmur í fleirtölu! Ég er nú ad ljúka dvöl minni hér í borg óttans (Salamanca ekki Reykjavík!). Mun koma heim eftir viku nákvaemlega, ég er ekki ad segja ad thad thurfi ad vera bordar og knöll á kantinum en ég býst vid sveittu slummi á kinnina frá öllum theim sem í thad leggja! Var med blússandi afmaelisgledi fyrir vinkonu mína í gaer, fórum nokkur saman á einn kínverskan (veitingastad, dónarnir ykkar!), ég var ad spreyta mig á saenskunni minni, sem einhverra hluta vegna hljómar eins og norska, já, eda svo var mér sagt! Svo var bara tekinn "beina veginn" á Calle Zamora 1 (thar sem túttan býr...jebb er ad tala um sjálfa mig í 3.persónu!) og thar var fengid sér í nokkrar taer, ég fékk mér í hálfa, sumir voru komnir alveg í 6-7 táslur undir thad sídasta. Thetta var bara týpískt kvöld á hásléttunni, glerbrot í franskri löpp, fólk ad spyrja hvort Ísland sé ekki fylki í Bandaríkjunum, einhver úr hópnum í dramakasti og einhver ad stinga af, thetta er sem sagt bara Selfoss eda Freys í staekkadri mynd! Jaeja, hér med lýkur thessari blogg-upphitun minni, verd ábyggilega frjórri thegar heilinn kemst nidur í edlilegt hitastig! Har det bra wonderbra, sjáumst sem thyrst....(vá, thetta slagadi upp í einn gódan Jónatan!)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2005 20:25:18 / klara_24

ÆÆÆÆÆMMM BEEEKKK!

Sæl verið þið hjartasöltin mín!

Long time, no blog! Ég týndi lykilorðinu mínu og komst bara að því rétt áðan að ég gæti fengið nýtt....ferlega sniðugt! Af mér er allt gott, ja, næstum því allt gott að frétta...fyrir utan það smávægilega atriði að ég er með háls-nef og eyrnabólgu! Sveinki bró gifti sig á laugardaginn, það var bara þrusufínt, hann og Brynja Hlín helvíti reffileg bara. Ég fékk það góða starf að "passa" Maríu Björgu á meðan athöfninni stóð og ég var orðinn geðveikt sveitt og með úfið hár þegar athöfninni lauk....slétta hárið farið fj......til! Jæja, nú nenni ég ekki að skrifa meir...er með hausverk og líður hálf kjánalega...er að fara til Spánar eftir ca 3 mánuði....ay ay ay arriba!

Tútlídú!;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2004 20:49:03 / klara_24

Hæ, hó og jibbí jei!

Pottþétt ekki vinsælasta fyrirsögnin í dag! Hvað segið þið þá lömbin mín? Ég segi allt gott, á von á heimsókn í sveitina, að vísu ekki bara ég prívat og persónulega, meira svona með helmingnum af staffinu!!! Ofurskutlurnar Halla, Hlíf og Anna fatlafól ætla allavega að kíkja á stemmarann í Freys um helgina. Veit ekki hvort að göngugarpurinn Magnús Thorlacius ætlar að láta sjá sig eður ei, var að hlera það einhvers staðar samt. Já, gleðilegan þjóðhátíðardag bæ þö vei! Hmmm...nú að allt öðru! Ég hef nú hugsað að skella mér í nám suður á bóginn, ekki búin að gera upp hug minn enn en býst við að það verði Salamanca eða Rennes...týpískt að enda svo í Torshavn me stóa jóta hendú, ekki me pena hendú! Hef ég hugsað mér að stunda nám í stærðfræði og eðlisfræði...já eða spænsku og frönsku! Tjaaa, ég verð nú bara að koma með einn fyndinn fróðleiksmola hérna á kantinn. Á Mývatni er haldin einhver undarleg hátíð sem nefnist Kúluskítshátíð! Nú eruð þið eflaust að velta fyrir ykkur hvað í ósköpunum Kúluskítur sé eiginlega og af hverju í ósköpunum ég sé líka að fræða ykkur um hann! Það er nú önnur og lengri saga börnin góð! Þetta eru sem sagt vatnaþörungakúlur sem eru mjög sjaldgæft fyrirbrigði og finnast aðeins í ca. 3 vötnum í heiminum...allavega þar sem fólk er á annað borð að kafa og skoða, merkilegur fjandi þetta! Jæja læt þetta gott heita úr undarlegheitum Öræfanna, verið þið sæl, Sigurður H Richter.

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2004 11:02:58 / klara_24

The Master of the Universe...Tótmanager!

Já, já börnin góð, dómsdagur hefur runnið upp í Öræfunum. Tótan situr nú við völd meðan yfirstrumparnir fara í holiday með litlu strumpana sína til lands túlípana og ákveðinnar tegundar af \"sígarettum\"...já, þið áttuð kollgátuna, það er gamla góða Holland, heldur betur! Þetta er bara ágætt enn sem komið er, ráðlegg ykkur samt að tala við mig eftir viku, gæti hafa skipt um skoðun þá...la dí da! Eva Lind er að bögga mig um að ég sé að gera einhverjar skyssur í tölvunni...ég held að hún þurfi að fara að leggja sig...smá einhverft innlegg þar sem að hún er að lesa af skjánum hjá mér og kommenta líka svolítið undarlega á ALLT sem ég geri, hvæs Eva, hvæs! Já bekk tú mæ storítæm. Æi ég nenni ekki að segja sögu...nema þá af því þegar ég ætlaði að hringja í breska ferðaskrifstofu áðan en hringdi í einhvern hálfölvaðan ref(var allavega með refslega rödd...arrr..kannski var hann bara nývaknaður og ekki hress með að einhver stelpuskjáta væri að spyrja um Libby svona árla morguns). Vá, fer bráðum að lemja Evu...mo ho ho...Eva það þýðir ekkert að reyna að fela sig á bak við reykta fjallaskinku...fyrirgefðu sveitaskinku...Æ vill ketts jú enívei! Heyrðu þetta er orðin svo mikil steypa að ég held að ég þurfi að fara að vinna. Blesótt folald í bili, Tótankamon.

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2004 18:56:28 / klara_24

Æm bekk!

Sæl verið þið og blessuð lömbin mín!

Nú hef ég snúið aftur til míns heima eftir 2 vikur í landi pasta og pizza. Ferðin heppnaðist vel og komust allir meira og minna heilir heim á húfi. Það var nú ekki neinn satanshiti þarna en nóg þó til að maður roðnaði aðeins, frétti síðar að sumir þessara verðandi súkkulaðirefa fíla bara hvítt skinn, þannig að Þóra var allavega í fínum fíling með sitt ekta Íslendingaskinn, Lilja var svona í útitekna kantinum og ég komst í byrjunarflokk súkkulaðirefanna, sem er nú samt sem áður í ljósari kantinum, allavega miðað við aldur og fyrri störf! Við gerðumst líka svo miklir ofur-túristar að það hálfa hefði verið mikið meira en nóg. Kíktum til Feneyja, San Marinó, Mirabilandia(sem er að vísu skemmtigarður) og í kvöldverð að hætti heimamanna eða héraðsbúa eins og farastjórar vorir myndu sennilega kjósa að kalla þá! Ég skrifa nú meir um þetta á næstkomandi dögum ef tími gefst til þess, yfirmenn mínir eru nefnilega að fara að leggja land undir fót og þá verður Tóta Pinochet við völd á hótelinu...mo ho ho ho (illmennahláturinn ath!)

Jæja, nú er ekkert annað eftir en að kveðja í bili og vona ég að þið finnið innri frið og hamingju með grænkandi högum og runnum!

Ciao tutti!

Frau Totta...Ja Herr Braun!


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.05.2004 15:53:09 / klara_24

Dagur Satans frá Saurbæ!

Kannist þið við það þegar þið vaknið í vondu skapi og ykkur langar helst til að lemja einhvern um leið og þið hafið nuddað burt stýrurnar? Þannig dag átti ég í gær. Er náttúrulega fyrir löngu búin að viðurkenna mislyndi mitt en í gær var ég alveg að fara yfir um á því, var svo pirruð og fúl að það gersamlega lak af mér fýlan(ekki samt líkamsfýla!). Það var bara allt að fara í mig. Allt frá því að ég átti eftir að þvo þvottinn minn til þess að vera ekki eins vaxin og Jennifer Aniston(sem vel að merkja vekur mestu gremju mína! Svo eftir að hafa verið staffinu til mikils ama í u.þ.b. 2 klukkustundir ákvað ég að láta gott heita og vera í lötu skapi í staðinn, sem mér ferst afar vel úr hendi þar sem ég er löt að eðlisfari. Skap mitt léttist líka talsvert við norska unglingaþáttinn Fjortis, sem er hrein snilld. Nú þarf ég að snúa mér aftur að þýðingum...Guðni Kolbeinsson og Kolbrún Sveinsdóttir, watch out!

Kem heim í heiðardalinn á morgun gott fólk, fer svo út á fimmtudaginn...júbbídei!

Toots.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2004 14:27:38 / klara_24

Ruslana refur!

Já það var bara Úkraína, heimaland Ruslönu og Nataly, sem vann Júró í gær. Ég var orðin frekar hrædd á tímabili þegar Serbía og Svartfjallaland var búið að hreiðra um sig á toppinum...var alfarið að styðja Úkraínu, Grikkland og Svíþjóð(kannski svona innst við beinið Jónsa líka). Ég var að sjálfsögðu upp á bar í vinnunni að horfa á keppnina á breiðtjaldinu okkar(já út af því að ég á svo mikið í því einmitt!). Þetta byrjaði ágætlega, allir í góðum gír og með gleði og söng í hjarta. Þar sem ég er "svoddann" Júrófan að þá fannst mér eins og að ég væri búin að vinna í lottóinu og hefði fengið kastala í kaupbæti, eða að Friðrik krónprins hafði látið ógilda hjónaband sitt því að hann væri "secretly in lööööv with me"...þar kæmi auðvitað kastala-/hallardíllinn inn í þetta allt. Jæja aftur að gærkveldinu. Þar sem ég var nú löngu búin að festa kaup á Júrógeisladiskunum þá kunni ég bróðurpartinn af flestum lögunum, svona innan skynsemismarka, ég var ekki farin að læra serbnesku eða e-ð álíka gáfulegt, þó það kæmi sjálfsagt fáum á óvart ef ég gerði það. Ég reyndi hvað ég gat að halda aftur af sönggleði minni en stundum varð ekki aftur af minni raust haldið og ég söng nokkra tóna með í nokkrum lögum. Sem að ég giska á að hafi verið vægt pirrandi! Svo byrjaði stigagjöfin! Þá gersamlega iðaði ég af æsingi og var farin að smita svolítið út frá mér, já svo voru auðvitað sumir svolítið spenntir líka, þannig að á tímabili vorum við farin að öskra MÓNAKÓ, MÓNAKÓ, MÓNAKÓ, vegna þeirra stiga sem þessar elskur voru nógu góð til að gefa okkar þjóð sem í vanda var stödd í landi stigaleysis! Eftir allt sjónvarpsglápið tók svo við undarleg skemmtun sem slagaði nú alls ekki upp í gleðina sem ríkti hjá okkur í fyrra þó svo þetta hafi samt verið hið besta kvöld. Bara svo þið vitið af því, þá skrifa ég líka pistla í vikublað eldri borgara ef þið eruð að velta fyrir ykkur hvað þetta er ótrúlega eitthvað "pointless" En eins og flestir sem hafa orðið fyrir barðinu á sögunum mínum þá vita þeir að þetta er hátíð í bæ miðað við aldur og fyrri störf!

Þá er það bara Úkraína á næsta ári, Nataly myndi pottþétt fara með mér!

4 dagar í Rimini8)

Wild dancing kveðjur úr Öræfunum, Tótslana


» 29 hafa sagt sína skoðun

13.05.2004 16:52:39 / klara_24

Da da da da....vonn vík tú gó!

Nú er einungis vika í Ítalíuförina, þarf endilega að fara að gera "tjékklistana" mína. Ég viðurkenni fúslega þá undarlegu áráttu mína í skipulagningu...þetta á bara við um nokkur atriði eins og að gera lista yfir það sem ég þarf að pakka niður (fleiri en einn listi þar sem þú finnur ekki til dót, skó, snyrtidót og föt í sömu andránni!) raða í skott (á bíl), raða bókum, geisladiskum o.þ.h. Sem er að sjálfsögðu algerlega eðlilegur hlutur. Ég set samt ekki fötin mín í svona spes "ferðapappír" og hef pappaspjald á milli þeirra til að brotið sem ég var búin að strauja í í fötin mín haldist nú áreiðanlega, hmmm þetta er nú ekki svo slæm hugmynd. Jæja, þá er þessum undarlega pistli miðdagsins lokið...það fer nú kannski að gerast eitthvað hérna í sveitinni svo að maður geti farið að koma með eitthvað krassandi handa ykkur á að líta.

Kia ora mæ darlíngs.

Toots.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2004 16:03:30 / klara_24

Mér finnst rigningin gó-óð la la la la la....arrrrr!

Það á nú ekki að gleðja manns litla hjarta með sólskini og blíðu...nei höfum frekar Satansrigningu beint á ská svo maður verði nú ábyggilega rassblautur og með undarlegar krullur í hnakkanum! Nú styttist óðum í gondólana og gleðidýrin á Ítalíu. Ég, Lilja og Þóra erum komnar með stíft prógram þarna úti...þurfum að fara í eitthvað undarlegt "park" þar sem við getum skoðað byggingar og undur Ítalíu í smækkaðri mynd...við förum þangað aðallega fyrir Lilju að ég held, hún var allavega eins og Bambi á spítti þegar við vorum að tala um þetta. Svo ætlum við líka til Feneyja að ræna gulli með Mark Wahlberg og Donald Sutherland, snilldarplan sum sé...ætlum að skilja Edward Norton eftir, hann er svo helvíti skotglaður! Best að fara að b(r)óka fólk. Munið svo eftir forkeppni Júró í kvöld kl 19:00 að staðartíma.

Allt í lagi bless.

Tootsie.


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.05.2004 19:15:55 / klara_24

Stökkbreyttar hunangsflugur

Hér í sveitinni hafa undarlegir atburðir átt sér stað. Einhver vísindamaður hefur verið að sprauta sterum í hunangsflugur/randaflugur hér um slóðir og eru þær nú orðnar það stórar að það eru engar líkur á því að maður gleypir þær. Sem er að sjálfsögðu góðar fréttir en náttúrulega hræðilegt ef þér tækju upp á því að fljúga á mann því þá gæti maður hlotið alvarlegt höfuðhögg ef ekki vægan heilahristing. Hugsið um málið!

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2004 18:36:46 / klara_24

The moment you all been waiting for!!!!

Já, undur og stórmerki hafa gerst í sveitinni. Gunnþórunn Klara hefur hafið blogg og mun nú verja sínum sýrða tíma í ennþá súrari sögur en áður hefur þekkst! Lilja er geðveikt spennt hérna á kantinum...það er líka ekki nema um hálftími síðan Guiding lauk og hún ennþá svolítið "high" af þættinum. Við erum líka að fara út í rómantíska slökunarferð til Ítalíu eftir einungis 9 daga!

» 2 hafa sagt sína skoðun